Um okkur

Einfaldari flutningar byrja með betri kössum.

Við hjá BoxRental viljum gera flutninga einfaldari, þægilegri og hagkvæmari fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Við þekkjum öll vesenið við að safna pappakössum, fara á milli verslana og uppgötva svo í miðjum flutningum að kassarnir duga ekki. Þess vegna bjóðum við upp á sterka, fjölnota flutningskassa sem þú færð afhenta heim að dyrum.

Kassarnir okkar eru framleiddir í Bretlandi úr endurunnu plasti, þola allt að 30 kg og eru hannaðir til að staflast á öruggan hátt. Með leigupökkunum fylgja kassahjól sem auðvelda flutningana enn frekar.

Við sjáum um kassana – þú sérð um flutningana.

Þú velur þann pakka og leigutíma sem hentar þér. Við afhendum kassana og sækjum þá aftur þegar þú ert búinn að tæma þá. Engin þörf á að geyma tóma kassa eða losa sig við þá eftir flutningana.

Við bjóðum einnig upp á ýmsar viðbætur til leigu og sölu sem geta auðveldað flutningana.

Vantar þig eitthvað sérstakt eða ertu með hugmynd að því hvernig við getum bætt þjónustuna? Hafðu endilega samband!

BoxRental er rekið af Spretti Flutningum ehf.